Eva og Mundi
21.09.2007 16:00:46 / goostry

Love bugs!

Þetta er ekki eins skemmtilegt og nafnið gefur til kynna, ónei aldeilis ekki. Þær bara birtust í gær eins og hendi væri veifað.  Þetta eru flugurnar sem eru svona ein og hálf eftir einhverjar tilraunir á tilraunastofum  fyrir einhverjum árum.  Þær koma á vorin og svo í september.  Oj:evil:

Í vor var það þannig að ef maður keyrði Narccoosse þá þurfti að þvo bílinn á eftir. Núna eru þær utaná og inní:whut:skríninu og ég fór út kl 7.30 í morgun með ryksugu og ryksugaði allt sem ég náði til, þá voru sko framin alvöru fjöldamorð.

Annars eru þær svo skrítnar þær klessast einhvernvegin við það sem þær setjast á og það er enginn vandi að ryksuga þær eða drepa með öðrum hætti.  Þær eru þannig að þær lifna á morgnana og drepast á kvöldin, pæliði í því þær lifa alveg heilan dag :klikk: enda eins gott því annars væru þær í milljónatali, nóg er nú samt.

Vona að þetta tímabil standi ekki yfir nema í nokkra daga, þetta er frekar ógeðfellt.

Nú veit ég af hverju ég hef aldrei viljað vera heimavinnandi húsmóðir, er búin að komast að því hérna í Ameríkuhreppi. Segið þið svo að maður læri ekki eitthvað á öllu þessu brölti.;)

Annars er allt gott hérna megin Atlantshafsins og lífið gengur sinn vanagang.

Floirdakveðja Eva og co.


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.09.2007 13:58:15 / goostry

By the way -Skemmtisigling

Meira um afmæli.

Mundi fékk heimagerða bók í A4 formi með gormum og myndum sem leiddi hann áfram að gjöf frá stórfjölskyldunni.

Allir söfnuðust saman og gáfu honum siglingu með skemmtiferðaskipi í viku:D þetta er náttúrulega meiriháttar og ég fæ að fara með.;)

Við erum að hugsa um að fara í febrúar þegar hann lýkur 7 vikna náminu eftir áramót. Við vorum fyrst að hugsa um des. en þá eru krakkarnir í skóla og prófum og líka alltof stutt til jóla að mínu mati.

Það er líka svo gott að hafa eitthvað til að hlakka til og þetta verður bara snilld og eitthvað sem við höfum verið að tala um að gera en ekki komið því í kring fyrr en núna.

Við erum í sjöunda himni yfir þessu og bara hlökkum til.:haha:

Floridakveðja Eva og co.


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.09.2007 13:47:12 / goostry

Skólamáltíðir

Ég skil ekki hvernig þetta er með skólamáltíðir hérna í USA. Ef boðið væri uppá þessar máltíðir á Íslandi þá yrði mötuneytinu lokað:!:

Ég smyr fyrir stóru unglingana vegna þess að í boði eru bara djúpsteiktir kjúklingar, pizzur og eitthvað sem er djúpsteikt og fitugt. Meira að segja í einkaskóla eins og Ágúst er í þá er maturinn eftir lýsingunni að dæma alveg fáránlegur. Á föstudögum er pöntuð pizza frá Pizza Hut og segir Ágúst að ef þú tekur utanum hana þá leki úr henni fitan, jakk.:evil:

Ég held að Jamie Oliver ætti að koma til Florida og skoða mötuneytin þar eins og í Englandi. Ágúst saknar heldur betur matarins í Glerárskóla sem er bara venjulegur heimilismatur.

Annars held ég að það sé staðreynd hér að fiskur er ekki mikið reyndar mjög lítið borðaður.

Nú eru þeir alltaf að predika um heilsu og er mikil umræða bæði í fréttum og sjónvarpsþáttum um heilbrigði og bættan lífsstíl, en ég held að þeir ættu að byrja á byrjuninni og bæta mötuneytismenningu í skólum og hana nú.:frown:

Allt annað mál, það er rigning í dag og var í gærkveldi líka. Yfirleitt rignir bara í 15-20 mínútur í einu en nú er búið að rigna í hálfan sólahring og sér ekki fyrir endann á því í dag.  Stendur til bóta á morgun því þá er bara 20% líkur á rigningu en var 90% í dag. Þetta er nú bara gott þá eru ekki kjarreldar á meðan.

En ég er nú heldur löt þessa dagana og fresta öllu til morguns, hef sofið á morgnana og bara verið alltöf löt. Nú fór ég á fætur kl. 8 í morgun og er á leið í YMCA til að hlaupa og æfa í svona klukkutíma eða svo. Vona að það spýti í mig einhverjum dugnaði.:$

Næstu næturgestir, Kolla og Frissi, koma á þriðjudagskvöld og verða til laugardags þegar þau fara í siglingu með fleira fólki:$

Floridakveðja Eva og Co.

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.09.2007 21:49:04 / goostry

Friður og ró!

Jæja þá eru gestirnir allir farnir:cry:

Þetta er aldeilis búin að vera viðburðaríkur tími. Þegar flest var þá vorum við 20 í þessum tveimur húsum hérna hlið við hlið. Þetta var alveg frábært og gekk alveg rosalega vel með allan þennan fjölda. Fólk bara gerði það sem það vildi og fór í þær sjoppur sem það valdi fyrir sig.

Allir fóru síðan saman í Busch Gardens einn mánudag, (ég leyfði krökkunum að skrópa í skólanum ef þau lofuðu að segja ekki frá því ;)) Þetta gekk svona ljómandi vel.

Fólk týndist svo heim í skömmtum og fóru Hrefna, Árni og Rósa síðust á laugardaginn.

Þetta er nú búið að vera svolítið strembið sumar fyrst öll í Hvammshlíðinni og síðan öll hérna úti í mánuð. Við vorum oft að borða öll saman í sumar og síðan nú hérna úti og að vera með 11-14 í mat er nú bara dálítið. Ekki það að ég eldaði alltaf það er nú öðru nær. Hún elsta dóttir mín er miklu húslegri í sér en ég orðið og hugmyndaríkari í matseld.

En snúum okkur nú að aðalatburðinum í öllu þessu, fimmtugsafmæli húsbóndans. Þegar við komum út þá ákváðum við að halda boð í Golfskálanum hérna í Eagle Creek. Það var ítalskt hlaðborð og súkkulaði fondue í eftirrétt ásamt köku sem Hákon lagði til og kom í góð not.

Þetta var boð frá 6-10 og þá fóru allir heim í Goostry.  Þetta var svo búið á skikkanlegum tíma eins og yfirleitt er hérna í Ameríku svona um 1.30 voru allir farnir heim að lúlla.

En aðalatriðið í þessu var að ég ásamt Tomma, Huldu,Freyju og fleirum var búin að vera að leita að Harley handa afmælisbarninu dagana á undan. Á fimmtudegi fyrir veisluna fór hann síðan í veiðibúð með Rúnari og fleirum og drifum við okkur þá í Harley umboð til að versla. Við vorum nú ekki lengi að kaupa eitt Harley Davidson 2007 Fat boy og síðan fórum við stelpurnar á bílnum og Tommi á hjólinu, það er verst hvað honum fannst það leiðinlegt:haha:

En viti menn það hefur ekki ringt hérna í háa herrans tíð en þegar hann var á leiðinni heim þá kom þessi líka hellidemba, að vísu með 35 stiga hita, en hann var alveg holdvotur þegar heim var komið. Svo byrjaði stressið að koma hjólinu í skúrinn á móti áður en Mundi kæmi heim. Þeir hringdu og sögðust vera á Narccoosse þegar Tommi var að hjóla þar. Við vorum fljótar að senda þá í Publix og fengu hinir í bílnum skilaboð um að vera lengi í búð. Tommi kom síðan á seinna hundraðinu og rauk inn og í sundlaugina með bjór og lét eins og hann hefði verið þar bara í leti langa lengi.;)

Síðan setti ég samkomuna í golfskálanum og afhenti Munda kassa í afmælispappír og sagði honum að ég vildi að hann opnaði hann úti en ekki inni í skálanum. Allir fóru síðan út og þá kom Tommi á hjólinu og ég held að sá gamli hafi nú orðið svolítið undrandi og hrærður þegar hann sá hvað sú gamla færði honum:P

Þetta vakti almenna lukku bæði meðal gesta og ekki síst hjá starfstúlkunum í skálanum þær héldu varla vatni yfir þessu.

Þetta er semsagt stutt ádrepa um hvað hefur á dagana drifið og verð ég vonandi duglegri að skrifa núna þegar ég hef bara ekkert að gera amk. í bili.

Floridakveðja Eva og co.


» 0 hafa sagt sína skoðun


RSS tengill