Eva og Mundi
30.10.2006 17:53:19 / goostry

Klukkan hvað!

Hey, ég gleymdi að segja ykkur það að klukkan breyttist í Ameríku í gær og við erum núna 5 klukkutímum á eftir ykkur.  Bara að muna á morgnana ef þið ætlið að hringja8|

Setti inn klukku neðst í blogginu og þar getið þið séð hvað klukkan er hjá mér.

Eva


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.10.2006 17:08:15 / goostry

Monday monday

Jæja þá er búið að fara á eitt fótboltamót hérna í ameríkuhreppi. Það var nú bara nokkuð gaman, þeir unnu alla sína leiki nema úrslitaleikinn og urðu þannig í öðru sæti.

En þeir eru alveg ótrúlegir þessi spanjólar í liðinu þeir eru algjörir einleikarar og gefa helst ekki boltann:whut: þeir eru bara í því að sýna listir sínar og þvæla mann og annan og enda svo með að missa boltann þegar komnir eru 2 eða 3 mótherjar á þá. En Jói segir að þetta sé greinilega eitthvað sem þjálfarinn er að reyna að breyta því hann grátbiðji þá um að senda boltann og áhorfendur hróðuðu stanslaust ´'pass the ball pass the ball'

En svona að öðru þá var þetta ágætt og við gistum á hóteli og gerðum úr þessu ferðalag til Gainsville.

Á heimleiðinn um kl. 6 í gærkveldi þá lentum við í þvílíkri umferðateppu að við höfum aldrei séð annað eins, þetta var þriggja akreina vegur og við náðum að keyra alveg á 10 mílna hraða í hálftíma og það voru bílar svo langt sem augað eygði. En þetta leystist nú og Munda hægðist aðeins þegar hann gat farið að kitla pinnan aftur;).

Nú er Jói bara heima, mamma ætlar að senda hann með miða á morgun sem segir að hann hafi verið 'veikur' eða þannig því hann var mjög þreyttur eftir 6 leiki í hitanum og sólinni um helgina.

Ég er búin að kaupa mér far heim þann 21 nóv. til að vinna fyrir Tréborg og verð til 1 des og þá verður Mundi einn með strákana á meðan. Þetta verður nú dálítið skrítið, ég er ekkert vön að ferðast ein og við erum nú eins og Paul og Linda við erum nú ekki vön að vera sitt í hvoru landinu. En þetta hlýtur að blessast, maður er nú ekki tvævetur lengur:D.

Floridakveðja Eva og Co


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.10.2006 00:08:43 / goostry

Föstudagur til fjár.

Nú tókum við það rólega í dag og gerðum nánast ekki neitt nema við fórum út að labba í morgun og hlupum að meira að segja. Verður vonandi meira um þetta á næstunni.

 En við vorum búin að segja báðum strákunum að taka school bus heim og því ætluðum við bara að vera heima í tölvu og rólegheitum. Mundi segist reyndar  vera kominn með óbeit á þessum bíl, en ég segi nú bara ,þetta er rétt að byrja minn kæri.;)

En viti menn kl 2,32 hringir Jói og segir að hann megi ekki fara í vagninn vegna þess að það vanti einhverja pappíra :S og við af stað að sækja kappann. Skrítið en Ágúst gengur inn og út úr vagninum eins og ekkert sé. Mamma á nú eftir að athuga þetta, hringi á mánudag í þá sem stjórna þessu og læt þá heyra það    eða þannig.

En Gústi minn ég sofnaði áður en ég bloggaði í gærkveldi svo nú kemur það.

Mínir menn fengu steiktan fisk a la mamma í gærkveldi og það var mikil gleði að minnsta kosti hjá þeim elsta. Þetta var líka þessi líka dýrindisfiskur þorskflök keypt frosin í Publix. Allavega Mundi tók gleði sína alveg um leið.

Á morgun laugardag ætlum við svo til Gainsville og horfa á Jóa spila með East orange soccer  club á móti og sjá hvernig það gengur.

Verð ekki í sambandi  fyrr en á mánudag í fyrsta lagi með fleiri fréttir.

Floridakveðjur Eva og co


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.10.2006 00:40:49 / goostry

Beðið eftir "social security number"

Jæja , ekki voru ID skírteinin í póstkassanum í dag en vonandi á morgun. Það er allt stopp á meðan við fáum ekki þessi social númer og við getum ekki tekið bílprófið á meðan þannig að við erum ennþá á "seðlatætaranum":whut:eða Dodge Durango.

 Mundi kallar bílinn þessu nafni því við erum búin að fylla hann örugglega 5 sinnum á þessum hálfa mánuði :evil: eins gott að gallonið kostar bara 2$. 

Í gær fór Ágúst í spilatíma og í dag fórum við svo aftur í búðina sem selur hljóðfæri og keyptum píanó. Þannig að nú getur hann farið að spila af sinni alkunnu snilld.

 Um helgina fer Jói svo á fótboltamót til Gainsville sem er 160 mílur fyrir norðan Orlando. Hann fer með liðinu á föstudag og við erum að hugsa um að fara á laugardag og sjá nokkra leiki og gista á hóteli og koma svo með honum til baka á sunnudag. Það verður fróðlegt að sjá hvernig þetta lið er :S það eru eintómir strákar í því sem eru í boltanum með sínum high school. Ég á nú eftir að sjá hvort Jói heldur áfram að vera í vinningsliði :P eins og hann var í síðastliðið sumar,  en kemur í ljós að leikslokum.

 Nú eru þeir feðgar að setja saman píanó og síðan verður örugglega konsert ef ég þekki hann Ágúst minn rétt.

8)Floridakveðja Eva.


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.10.2006 00:58:07 / goostry

upphaf

Jæja þá er fjölskyldan komin með bloggsíðu og eftir að sjá hversu dugleg við erum að setja inn og leyfa ykkur að fylgjast með lífinu í Orlando city.8) Við erum núna búin að vera í 2 vikur og þær hafa liðið mjög fljótt enda þó nokkuð mikið að gera svona í byrjun amk. En dagurinn er tekinn snemma hérna og við á fætur kl. 6,30:cry: og erum á stundum að koma heim úr síðustu ferð kl að verða 8 um kvöld. :!: En svona verður þetta núna í byrjun amk og svo er að sjá til þegar lengra líður og við verðum búin að koma okkur upp einhverri rútínu. ÚFF en það var eins gott að við ætluðum ekki að fara að vinna strax eða í skóla, því þetta er fullt starf að sinna þessum strákum. En nú er klukkan orðin næstum hálftíu og ég farin að geispa, potturinn er heitur svo það er best að dýfa sér aðeins í hann fyrir svefninn og því verður þetta að bíða betri tíma.8|

Kveðja frá Florida

Eva;)


» 2 hafa sagt sína skoðun


RSS tengill