Það er búið að skíra drenginn og hann heitir Heiðar Magni

bara flott og gaman að þau skyldu skíra eftir Heiðari frænda.
Við skírðum og héldum veislu fram á Öngulsstöðum hjá Hrefnu því gestir voru um 60 með börnum og þótti mér það fullmikið í Hvammshlíðina þó stór sé.

Allavega þá tókst þetta með eindæmum vel og var alveg frábær stund og veisla, þó ég segi sjálf frá

Margir hjálpuðust að eins og venjulega þegar svona atburður er í fjölskyldunni. Björg bakaði marenstertur, Hulda gerði hrísköku og Betty, amma Hulda setti á smurbrauðstertur og ég keypti skírnartertuna ásamt því að gera heita brauðið og ýmislegt í samvinnu við Björgu. Við létum svo Hrefnu um að skreyta og sjá um salinn eins og hennar er von og vísa.

Gott að vera búin að koma nafni á drenginn svo það festist ekki eitthvað gælunafn við hann sem erfitt er að losna við.
Nú erum við að græja herbergið í endanum niðri og láta mála það og síðan fer það í leigu um mánaðarmótin. Jói er fluttur í herbergið við hliðina og það verður málað líka. Hann hefur svo stóra baðið fyrir sig. Það er semsagt allt að komast í fastar skorður í Hvammshlíðinni.

Fleiri fréttir síðar.
Kveðja Eva og co.