Það eru umhleypingar bæði inni og úti.

Það bara getur ekki verið sama veður tvo daga í röð. Hvar er Florida núna
Annars er bara lítið að frétta og lífið gengur sinn vanagang. Vinna borða sofa, nei það er nú aðeins meira. Ég er að reyna að vera dugleg í ræktinni og nú er ég búin að lofa sjálfri mér að fara í tíma mánudaga og miðvikudaga kl 16.15 í vaxtamótun hjá Ásu, fór loksins í þann tíma á miðvikudaginn var og hann er mjög góður fyrir svona konur á góðum aldri.
Annars er fólk farið að spyrja mig, hvað á að gera á afmælinu? Sko ef þið ekki vitið þá verð ég fimmtug 12.janúar. Ég hélt nú uppá 40 ára afmælið mitt og það var þvílíkt aftakaveður að mamma hringdi 10 sinnum um daginn og spurði hvort ég væri ekki hætt við. En það tókst nú alveg rosa vel og um kvöldið stytti upp með stillu og þvílíkum snjó. Það var svo brjálað um daginn að það þurfti að fá Tómas á sínum fjallajeppa til að sækja Hrefnu og Árna sem þá bjuggu á Höskuldsstöðum. Það var ómögulegt að hún væri heima hún var með slatta af matnum.

Annars er ég ekki viss núna um að ég haldi uppá afmælið mitt, læt mig kannski bara hverfa, þó ég eigi nú ekki far til Orlando fyrr en í apríl.

Það er nógur tími til að ákveða sig en einhver er með góða hugmynd að góðum degi þá endilega látið mig vita.

Nú er Ágúst í 10.bekk og það er í gangi fjáröflun sem ég tek að sjálfsögðu þátt í það er nú hver að verða síðastur að vera með í svoleiðis það eru allir að verða fullorðnir hjá okkur.

Þá er að finna sér eitthvað hobby, er kominn í kvenfélagið í sveitinni og síðan eru konur frímúrara að fara að hittast nokkru sinnum á ári svo það er alltaf eitthvað hægt að verða sér út um.
Nóg í bili
Eva og co.